Vestre var stofnað í Noregi 1947 og hefur allar götur síðan verið ráðandi á Noregsmarkaði í hönnun og framleiðslu á bekkjum og öðru sem m.a. er notað til skrauts og þæginda í almenningsgörðum, útisvæðum og á einkalóðum.
Aðalskrifstofur Vestre eru staðsettar í Ósló, en framleiðslan fer að mestu fram í nýtískulegum verksmiðjum fyrirtækisins í Kvål, Noregi, og í glæsilegri verksmiðju í Torsby, Svíþjóð. Hjá Vestre koma saman norski viðurinn og sænska stálið. Er hægt að fara fram á betra hráefni? Vestre hefur hlotið fjölmörg hönnunarverðlaun í Noregi, ekki síst vegna gæða, endingar og umhverfisvæni.
|





