Patentverwag Italia var stofnað 1971. Í fyrstu snerist framleiðsla fyrirtækisins um sæti fyrir kvikmyndahús og leikhús. Fljótlega hóf það einnig að framleiða sæti og stæði fyrir íþróttaleikvanga, sundlaugar og þess háttar starfsemi. Jafnframt framleiðir það ýmis konar aukabúnað fyrir íþróttaiðkun.
Um 1990 hóf Patentverwag að framleiða skiptiskápa fyrir búningsklefa í sundhöllum, á golfvöllum, í íþróttahúsum og víðar. Leiðin hefur legið upp á við, eins og lesa má á heimasíðu fyrirtækisins. Það hefur ekki síst orðið fyrir þá sök, að hjá Patentverwag má á einum stað finna allt fyrir búningsklefann og áhorfendastúkuna. Ítarlegri upplýsingar er hægt að nálgast hjá okkur hjá Jóhanni Helga & Co, til dæmis með tölvupósti, eða á heimasíðu Patentverwag. |






