Hinar svokölluðu jaðaríþróttir hafa mikið sótt í sig veðrið uppá síðkastið og skildi engan undra að ein hin elsta og víðkunnasta í þeim geira, hjólabrettin, fari þar fremst í flokki.
Með því að setja upp hjólabrettapalla eru bæjarfélögin að draga úr þeirri hættu sem skapast af hjólabrettaiðkun á götum og gangstéttum.
 |
Pallar frá Rhino-Ramps standa öðrum pöllum framar að því leyti að sá hávaði sem hlýst af stórum viðarkassa sem keyrt er á og hoppað, hefur verið minnkaður svo um munar.
Í 10m fjarlægð er Rhino-Ramp pallur talsvert hljóðlátari en meðal skrifstofuhávaði. Hávaðamælingar hafa sýnt fram á að Rhino-Ramps pallarnir eru hljóðlátustu hjólabrettapallarnir sem eru á markaðnum nú til dags.
Þá staðreynd má rekja til þess að yfirborðsefni Rhino-Ramps er úr trefjaefni sem að dregur í sig hávaða auk þess sem undir yfirborðsefninu er PE-HD innralag sem einnig dregur úr hávaða. Í ofanálag er innviðum pallana skipt upp í minni hólf svo að ekki myndist stór hljóðhol sem virka áþekkt og í píanói.
Yfirborðsefnið er eldhelt, dregur ekki í sig raka, og detti einhver á pallinum er ekki hætta á flísum og verulega minnkuð hætta á brunasárum.
Hver einasti íhlutur og eining er vandlega hugsuð, allt ofaní skrúfurnar sjálfar sem hafa gengist undir ítarlegt ryð og álagspróf, auk þess sem sérhannaðir skrúfuhausar koma í veg fyrir skemmdarverk sem fela í sér að skrúfur séu losaðar.
Ítarlegri upplýsingar er hægt að nálgast hjá okkur hjá Jóhanni Helga & Co, til dæmis með tölvupósti, eða á vefsíðu Rhino.
Ítarefni á þessari síðu er meðal annars tekið frá upplýsingum af umræðuborði á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, þar sem hjólabrettagarðar sem þeir, er Rhino-Ramps framleiðir, voru til umræðu. Einnig má benda á aðrar innlendar síður, svo sem heimasíðu Akureyrarbæjar, sem einmitt setti upp hjólabrettagarð (sjá mynd að neðan):
