Legi járnrimlagirðingar frá Þýskalandi eru mjög vandaðar og þróaðar . Þar eru gæðin í hámarki og verðið í lágmarki.
Yfir 40 ára gamalt fyrirtæki í fararbroddi. Legi girðingarnar henta sérlega vel við skóla- og leikskólalóðir, íþróttaleikvanga, einkalóðir og fjölbýlishús.
Girðingarnar eru fáanlegar í mörgum útfærslum og litum, einnig eru þær sérlega auðveldar í uppsetningu. Hægt er að sjá uppsettar Legi girðingar t.d. við Slökkvistöðina í Hafnarfirði, leikskólann við Maríubaug, Leiknisvöllurinn og víðar.
JÁRNRIMLAGIRÐINGAR
• Fyrir skóla- og leikskólalóðir
• Fyrir íþróttavelli
• Fyrir skemmtigarða
• Fyrir einkaaðila
KOSTIR
• Þýsk hágæðavara
• Heitgalvaniserað og pólyesterhúðað
• Sterkar og endingargóðar
• Ýmsir litir
• Fjölbreyttir möguleikar
Þeir sem vilja fræðast meira um Legi geta nýtt sér heimasíðu Legi, eða haft samband við sölumann í síma: 565-1048 eða 820 8096, eða með tölvupósti.